Kamburinn

23 október 2005

hellú
dagurinn er búin að vera æðislegur! vaknaði, veik, þórey fór í vinnuna og ég fór aftur að sofa, vaknaði aftur um 4 þegar mamma hringdi í heimilissímann því minn var eitthvað í rugli, biggi kom svo í heimsókn því hann er vonandi að fara í sína "heimsreisu" á morgun, ef hann fær vegabréfið sitt frá noregi. svo kom þórey nú heim úr vinnunni með fullt af krassandi dópi fyrir mig, sem hún skoraði ekki í vinnunni heldur fór hún í apóskapó í leiðinni. svo fór hún í lærihópinn sinn og biggi fór í borgó til ömmu sinnar og afa, en ég sat eftir, bólgin af kvefi og með flottasta hár sem ég hef séð
hef bara ekki frá fleiru krassandi að segja þar sem dagurinn hefur ekki verið uppá marga fiska....

18 október 2005

Fúff!

já til allrar hamingju er ég búin að búa til heimasíðu, ég hef nú samt gert það einu sinni áður en ég gleymdi svo username-inu og password-inu, svo ég ákvað að þetta væri bara of erfitt.
En svo liðu dagar, mánuðir og ár þar til ég lét undan hópþrýstingi og fékk mér allt heila klabbið, og er meira að segja komin inn í msn-heiminn, eða, ég er að læra það :)

En svo ég byrji nú á því að tala um lífið og tilveruna, þá fór ég til ísafjarðar um helgina, þar var feikifjör, og fullt af brottfluttim ísfirðingum mættir á svæðið
Ég var í fyrsta skiptið í tvo og hálfan mánuð að koma heim, og allt hefur breyst svo mikið! ég vissi ekki alveg hvar ég átti að sitja á langa manga, þar sem hann er orðinn ennlengri, en svo keyrði ég líka í gegn um gömlu bensínstöðina á höfninn, nema bara hvað! það var búið að taka hana!
svo keyrði ég líka framhjá innkeyrslunni í bónus því það er búið að færa hana!

En eg gerði nú samt margt annað en að keyra í gegnum hluti eða framhjá þeim, ég og þórey fórum út um allt og tókum alls konar skemmtilegar myndir af hvorri annari, en só ósköp endaði með hrottalegri hormynd! Svo gaf ég mér að sjálfsögðu tíma til að skemmta mér örlítið :/ ;)

En ég held ég fari nú að fá mér smá skammt af þessu girnilega pasta sem þórey eldaði, ég get ekki beðið....... bæ ;)